Tónahvarf 6

Tónahvarf 6 er á einstaklega fallegum stað með miklu útsýni. Staðsetningin er góð og á eftir að batna mjög mikið með tilkomu Arnarnesvegar sem er á vegaáætlun 2020-2023. Húsið verður tilbúið í sumar/haust 2018. Húsið er staðsteypt, fylltmúrað að utan og múrað að innan. Bilin eru 16 en það er hægt að sameina fleiri bil eftir þörfum. Húsinu verður skilað fullbúnu að utan og lóðin fullbúin. Að innan verður húsinu skilað tilbúnu til innréttinga. Hiti, vatn og rafmagn komið inn. Múrað og málað en ein yfirborðsumferð eftir. Milliloft klárt og gólf slípað. Húsið verður málað í ljósum lit.